Haukar fá Njarðvík í Powerade-bikarnum

Hannes Sigurbjörn Jónsson, formaður KKÍ, dregur hér nafn Hauka upp úr skálinni.Í dag var dregið í 8-liða úrslit Powerade-bikars karla og kvenna. Meistaraflokkur karla og kvenna voru í drættinum og fæ bæði liðin Njarðvík sem næstu andstæðinga sína í bikarnum.

Strákarnir fá heimaleik á meðan stelpurnar þurfa að skella sér í Ljónagryfjuna og mæta þeim grænu á þeirra heimavelli.

Það voru þau Hannes Jónsson, formaður KKÍ, og Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ sem sáu um að draga.

Leikið verður dagana 8.-9. janúar.

Viðtal við Henning á KarfanTv

Viðtal við Sigurð Ingimundarson þjálfara Njarðvíkur á KarfanTV