Haukar-FH 8-liða úrslit karla

Strákarnir okkar eru komnir áfram í 4-liða úrslitin eftir sigur á FH í Kaplakrika í kvöld í framlengum leik. Í hálfleik var staðan 13-13 og 27-27 í lok venjulegs leiktíma. Í framlengingu tóku Haukar völdin og unnu 34:30.

Jafnræði var með liðunum nánast allan leikinn, það var þetta 2-3ja marka sveifla, síðan var jafnt og sveiflan fór í hina áttina. Strákarnir okkar mættu alltof værukærir til leiks, einbeiting var ekki í lagi og áttu þeir frekar dapran leik. Það var ekki fyrr en í framlengingu að þeir vöknuðu og kláruðu dæmið.

Þó leikurinn væri ekki vel spilaður þá var sigurinn fyrir öllu og frábært að klára 8-liða úrslitin í tveimur leikjum og fá smá frí, en fyrsti leikur í undanúrslitum er ekki fyrr en 19. apríl og þar mæta þeir annað hvort Val eða HK.

Haukar-FH 8-liða úrslit karla

Strákarnir okkar unnu öruggan sigur 29-22 á FH á Ásvöllum í kvöld.

Haukar skoruðu fyrstu fjögur mörkin og lögðu grunn að góðum sigri. Í hálfleik var staðan 15-11. Þeir byrjuðu seinni hálfleikinn líka vel og staðan var fljótt 20-12. Sigurinn var aldrei í hættu, FH náði aldrei að ógna forskotinu og sigurinn öruggur allan leikinn.

Strákarnir okkar voru ekki að spila neitt sérstaklega, þeir gerðu það sem til þurfti og unnu góðan sigur.

Næsti leikur verður í Kaplakrika fimmtudaginn 7. apríl kl. 19:15 og við mætum öll og hvetjum strákana okkar til sigurs.