Haukar geta tryggt sér deildarmeistaratitilinn í dag, þriðjudag.

sylviaHaukar munu etja kappi við Hamar í Dominos deild kvenna í dag, þriðjudaginn 22. mars, kl. 19:15 og geta með sigri tryggt sér deildarmeistaratitilinn.

Öllum iðkendum deildarinnar – stelpum og strákum verður boðið að koma kl.18 á morgun og fá sér pylsu í boði Fjarðarkaupa og svo verður andlitmálning á staðnum líka.

Actavis býður öllum stuðningsmönnum inn á leikinn og vonumst við til þess að sjá sem flesta.

Ef Haukastelpurnar vinna leikinn þá fá þær deildarmeistararbikarinn afhentan eftir leik! 🙂

Hvetjum alla til að mæta á leikinn og hvetja stelpurnar okkar til sigurs!!