Haukar – Grindavík leikur nr. III þriðjudaginn 5. apríl kl. 19:15

haukar kvennaHaukastelpur taka á móti Grindavík í þriðja leik í undanúrslitum Dominos deildar kvenna þriðjudaginn 5. apríl kl. 19:15.

Stelpurnar eru komnar með bakið uppvið vegginn fræga, en Grindvíkingar leiða einvígið 2-0 og því er sigur nauðsynlegur til að einvígið haldi áfram. Eftir að Haukarnir hentu frá sér fyrsta leiknum var ljóst að annar leikurinn í Grindavík yrði erfiður, sem varð rauninn. Grindavíkurstúlkur spiluðu gríðarlega vel og hittu vel úr 3ja stiga skotum í leik nr. II og áttu Haukar fá svör.

Nú þurfa stelpurnar að sýna úr hverju þær eru gerðar og koma vel einbeittar til leiks. Vörnin þarf að vera grimm og þær þurfa að spila harðari vörn á skotmenn Grindvíkinga. Sóknin þarf að flæða vel og stelpurnar að hafa trú á sínum skotum og verkefninu í heild. Ljóst er að liðið er nógu gott en nú þarf bara að ná upp sjálfstraustinu og það kemur ef leikmenn leggja allt í sölurnar.

Nú er hver stórleikurinn á dagskrá í Schenkerhöllinni og nóg um að vera, en nú þurfa stelpurnar stuðning og því hvetjum við allt Haukafólk til að mæta í Schenkerhöllina á þriðjudaginn og hvetja stelpurnar áfram til sigurs.

Áfram Haukar.