Haukar Hafnarfjarðarmeistarar í handbolta

HaukarHaukar urðu á föstudag Hafnarfjarðarmeistarar í handbolta karla eftir sigur á FH í úrslitaleik 17-11. Vefsíðan handbolti.org gerði mótinu góð skil og her gefur að líta umfjöllun síðunnar um leikinn og viðtal við Aron Kristjánsson, þjálfara Hauka.

FH og Haukar og mættust í hreinum úrslitaleik á Hafnarfjarðarmótinu. Fyrri hálfleikur var í járnum og skiptust liðin á að vera með forskot. Haukar voru þó heldur sterkari síðustu mínútur fyrri hálfleiks og leiddu í hálfleik 9-6. Í seinni hálfleik mættu FH-ingar hreinlega ekki í leikinn og þá sértaklega sóknarlega séð. Haukar hreinlega  keyrðu yfir FH-inga og náðu mest 8 marka forskoti. Lokatölur 17-11 og Haukar því Hafnarfjarðarmeistarar 2012. 

Viðtal við Aron Kristjánsson má sjá hér