Haukar halda norður

akureyrihaukarÁ morgun, miðvikudag, fær meistaraflokkur karla í handbolta annað taækifæri til þess að byrja þetta tímabil, en þá mæta þeir Akureyri fyrir norðan kl. 19:00 í 6. umferð Olísdeildar karla.

Fyrir leikinn eru bæði lið með 2 stig í 9. og 10. sæti deildarinnar en bæði lið hafa unnið Selfoss og tapað 4 leikjum. Það er því um hörkuleik að ræða á botni deildarinnar þar sem bæði lið vilja ólm koma sér ofar upp töfluna. Það er því um að gera fyrir Haukafólk fyrir norðan að skella sér í KA-heimilið kl. 19:00 á morgun, miðvikudag.

Það má líka minna allt Haukafólk og annað handbolta áhugafólk að taka frá næsta laugardag en þá mætir Haukaliðið sænska liðinu Alingsås í EHF-bikarnum kl. 16:00 í Schenkerhöllini og þar þarf Haukaliðið allan þann stuðning sem um getur. Áfram Haukar!