Haukar mæta Stjörnunni í fimmtu umferð Domino’s deildar karla í körfuknattleik í kvöld en leikið verður í Ásgarði, Garðabæ. Haukar hafa farið vel af stað í deildinni og sitja í 4. sæti með 6 stig. Góður sigur vannst gegn Snæfelli í síðustu umferð og eru Haukar staðráðnir í að halda áfram á sigurbrautinni.
Leikurinn hefst kl. 19.15 og verða klöppur á staðnum fyrir stuðningsmenn Hauka. Það er því um að gera að skottast yfir í nágrannabyggðina og láta vel í sér heyra.