Það er komið að næsta slag milli Hauka og ÍBV nú mætast liðin í Schenkerhöllinni í kvöld kl. 19:30. Haukastrákarnir ætla að mæta dýrvitlausir til þess að jafna metin í einvíginu og því er skyldumæting fyrir Haukafólk í rauðu til þess að styðja strákana og hjálpa þeim í þeirri baráttu. Ekki láta þig því vanta og áfram Haukar!