Haukar – KR. Fyrsti leikur í undanúrslitum, fimmtudaginn 5. apríl kl. 19:15

Fyrsti leikur í undanúrslitaeinvíginu á milli deildarmeistara Hauka og Íslandsmeistara KR fer fram fimmtudaginn 5. apríl kl. 19:15 í Schenkerhöllinni.

Haukar komust áfram eftir ótrúlega spennandi einvígi á móti Keflavík, þar sem úrslit réðust í frábærum oddaleik í Schenkherhöllinni. það voru vel yfir 2000 manns á vellinum að styðja liðin og var stemningin hreint út sagt ótrúleg og spennan eftir því, en úrslit réðust á síðustu mínútum leiksins.
KR fór létt með slaka Njarðvíkinga, 3-0 og ættu að koma úthvíldir í verkefnið.

Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, í deild, og hafa Haukar unnið báða leikina og spiluðu nokkuð vel í þeim báðum. það má búast við hörku baráttu og góðum körfubolta hjá þessum liðum en bæði lið eru vel mönnuð.

Við hvetjum alla Hafnfirðinga og Haukafólk til að halda áfram að styðja liðið eins og verið hefur í síðustu leikjum. Mæta snemma, fá sér börger og hita upp á meðal stuðningsmanna.