Fyrsti leikur meistaraflokks karla í Lengjubikarnum í fótbolta verður á sunnudaginn þegar okkar strákar í Haukum mæta KR úr vesturbæ Reykjavíkur. Leikurinn fer fram í Egilshöll og hefst kl. 18:15.
Haukar eru í A deild, riðli 3, en önnur lið í riðlinum eru Grindavík sem er með Bláa lónið staðsett í anddyri bæjarins skv. heimasíðu bæjarfélagsins, nágrannar okkar úr Kópavogi, Handknattsfélag Kópavogs, ÍA frá Akranesi sem á einn fallegasta vita landsins, og Víkingur frá Reykjavík sem kallar sig hverfafélag í besta skilningi þess hugtaks skv. heimasíðu félagsins.
Lengjubikarinn er frábært undirbúningsmót fyrir komandi keppnistímabil og um að gera fyrir stuðningsfólk Hauka að fjölmenna á leiki okkar stráka og sjá unga og efnilega leikmenn.
Áfram Haukar!