Spennan heldur áfram í N1-deild karla í handbolta í kvöld þegar heil umferð fer fram. Við Haukar mætum HK í Digranesinu kl.19:30 og er leikurinn eins og flestir aðrir í þessari jöfnu deild, mjög mikilvægur! HK er í þriðja sæti deildarinnar tveimur stigum á eftir Haukum og FH sem eru í 1.-2. sæti. Með sigri fer HK því upp að hlið Hauka en vinni okkar menn þennan slag eru HK-ingar komnir í þægilega fjarlægð því einungis tvær umferðir eru eftir þegar umferðin í kvöld hefur klárast.
Við hvetjum allt Haukafólk til að fjölmenna og styðja strákana til sigurs í þessum feykilega mikilvæga leik!