KKÍ birti í dag þjálfaraval fyrir Stjörnuleiki karla og kvenna komandi Laugardag og þar með heildar leikmannalista. Haukar munu vera með þrjá fulltrúa í hvoru liði.
Hjá körlunum var Terrence Watson kosinn í byrjunarliðið á netkosningu einfalt.is og Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, valdi Emil Barja og Hauk Óskarsson* í liðið sitt.
Hjá konunum var Lele Hardy kosin í byrjunarliðið á netkosningu einfalt.is og hlaut hún meira að segja flest atkvæði allra kvenna. Andy Johnston, þjálfari Keflavíkur, valdi síðan Gunnhildi Gunnarsdóttur og Margrét Rósu Hálfdanardóttur í hópinn sinn.
Það verður því nóg af Haukafólki sem tekur þátt í þessari glæsilegu hátíð þar sem að Kári Jónson og Íris Sverrisdóttir keppa í þriggjastigakeppninni.
*Haukur Óskarsson var valinn í stað Darra Hilmarsson hjá KR sem gaf ekki kost á sér í leikinn.
Fréttatilkynning KKÍ um kvennaleikinn
Fréttatilkynning KKÍ um karlaleikinn
Facebook event Stjörnuleikjanna