Haukar mæta Njarðvík í undanúrslitum VÍS-bikarsins en leikið verður í Smáranum á morgun fimmtudag og hefst leikurinn kl. 20:00.
Meistaraflokkur kvenna er ríkjandi bikarmeistari og er stefnan sett á að vinna titilinn aftur.
Liðið þarf á öflugum stuðningi að halda til að landa titlinum.
Miðasala er á miðasöluappinu Stubbur.
Miðaverð:
16 ára og eldri 2.500 kr.
15 ára og yngri 1.000 kr.
Mætum í rauðu og styðjum okkar konur.
Áfram Haukar