Á morgun, þriðjudag, taka strákarnir í 2. flokki á móti Selfossi í 4ja liða úrslitum. Leikurinn hefst kl. 20.00 og verður leikurinn með meistaraflokks umgjörð. Nái strákarnir að sigra spila þeir um gullið. Selfoss er með sterkt lið og skorum við á allt Haukafólk að mæta á Ásvelli og hvetja okkar menn til sigurs.
Áfram Haukar!