Það er spáð blíðskaparveðri á Ásvöllum kl. 18:00 í dag þegar við Hauka-menn tökum á móti KA í okkar næst síðasta heimaleik í 1.deild karla þetta árið. Haukar eru sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 30 stig, fimm stigum á eftir Víking Ó. sem er í öðru sæti, en KA er í fjórða sæti með 29 stig.
Þannig að um er ræða afar mikilvægan leik fyrir bæði lið ef þau ætla að eiga möguleika að taka annað sætið af Víking Ó. Allir á völlinn!