Ágæta Haukafólk, næstkomandi miðvikudag, 14. mars kl. 19:15 taka Haukar á móti liði KR í Iceland Express deild kvenna í Schenker-höllinni á Ásvöllum. Með sigri í þessum leik tryggja Haukar sér rétt til að spila í fjögurra liða úrslitum deildarinnar, en tapi Haukar þurfa þær að treysta á hagstæð úrslit hjá öðrum liðum til að komast áfram.
Þar sem Haukar komu sér í lykilstöðu með sannfærandi heimasigri á toppliði Keflavíkur í síðasta leik, er engin ástæða til að nýta ekki þetta tækifæri og klára málin upp á eigin spýtur. Við treystum á að allt Haukafólk mæti á þennan mikilvæga leik og tryggja liðinu farseðilinn inn í úrslitakeppnina. Haukar fengu til liðs við sig mjög sterkan leikmann, Tierney Jenkins, í stað Hope Elam og virðist þar vera á ferðinni frábær leikmaður sem vonandi á eftir að hjálpa okkur mikið í barráttunni framundan.
Allir á völlinn á miðvikudaginn og tryggjum sæti í úrslitakeppninni.
Áfram Haukar!
kvennaráðið