Mfl. karla fær lið Þórs í heimsókn á föstudaginn kl. 19:15 í þriðju umferð Dominos deildar karla. Bæði lið eru 1-1 og hafa bæði unnið sinn heimaleik en tapað á útivelli.
Haukarnir fóru illa af ráði sínu í útileiknum á móti Grindavík, hittu illa úr opnum færum og vítum og vantaði uppá samvinnu í varnarleiknum. Strákarnir eru staðráðnir í þvi að koma grimmari til leiks og halda áfram að sigra á heimavelli.
Búast má við hörku leik tveggja jafnra liða og má búast við að deildin verði mjög jöfn í vetur og því er mikilvægt að ná að verja heimavöllin
Liði Þórs er spáð góðu gengi á þessu tímabili og því er mikilvægt að fólk fjölmenni á leikinn, fái sér börger fyrir leik og hiti upp í góðra vina hópi.
Áfram Haukar