Stórleikur verður í Schenkerhöllinni i kvöld kl. 19:15 er Valsstúlkur koma í heimsókn.
Valur hefur verið á góðu skriði á nýju ári og hafa unnið þrjá sterka sigra í röð og sitja eins og er í þriðja sæti Dominos deildar á meðan Haukar sitja í 1-2 sæti og má því búast við hörku leik í kvöld.
Haukastúlkur unnu ste
rkan sigur í síðasta leik, útileik á móti Grindavík. Leikurinn var mikil barátta milli tveggja sterka liða en Haukar leiddu nánast allan leikinn og unnu sanngjarnan sigur eftir jafnan leik.
Við hvetjum alla til að mæta á leikinn í kvöld, baráttan er hörð um efsta sætið í deildinni og heimavallarétt í úrslitakeppninni.
Áfram Haukar.