Haukastelpur á HM í Norður-Makedóníu

Á dögunum lauk heimsmeistaramóti U-20 ára kvenna í handbolta en það voru fjórir leikmenn frá Haukum í liðinu. Íslenska liðið

náði sögulegum árangri en það endaði í 7. sæti á mótinu sem haldið var í Norður Makedóníu en það er besti árangur kvennaliðs frá Íslandi sem náðst hefur hingað til.

Í liðinu voru þær Rakel Guðmundsdóttir, Inga Dís Jóhannsdóttir, Sonja Sigsteinsdóttir og Elín Klara Þorkelsdóttir. Haukar óska þeim og stelpunum í landsliðinu innilega til hamingju með árangurinn!