Haukastelpur unnu öruggan sigur á FH á útivelli um helgina þar sem Hanna Guðrún Stefánsdóttir fór fyrir sínu liði eins og svo oft áður. Í kvöld taka Haukar á móti botnliði Víkings sem er ungt lið sem er að stíga sín fyrstu skref í N1 deild kvenna. Leikurinn hefst kl. 19:30 að Ásvöllum. Síðar í vikunni hefja strákarnir leik að nýju þegar Fram sækja Ásvelli heim á fimmtudag.