Næsti heimaleikur Hauka í Iceland Express deild kvenna er í dag kl. 17.30 gegn Fjölni. Haukar eru sem stendur í 4. sæti deildarinnar með 12 stig en Fjölnir er á botni deildarinnar með 4. Haukamaðurinn Bragi Magnússon tók nýlega við þjálfun Fjölnis.
Síðasti leikur þessara tveggja liða var mjög spennandi en Haukar höfðu þar sigur að lokum 81-80.
Þetta er fyrsti heimaleikur Hauka með nýjan leikmann, Lauren Thomas-Johnson, sem kemur frá Bretlandi. Lauren spilaði með Kirkwood CC háskólanum og spilar stöðu bakvarðar.
Allir á völlinn, áfram Haukar!