Haukastrákar á EM

U-20 ára landslið karla var einnig á stórmóti á dögunum þegar þeir tóku þátt á Evrópumóti U-20 ára liða. Þar áttu Haukar einnig fulltrúa sem hjálpuðu liðinu að ná 7. sæti mótsins sem er jöfnun á besta árangri Íslands í þessum árgangi. Í liðinu voru þeir Andri Fannar Elísson, Birkir Snær Steinsson, Össur Haraldsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson sem gekk til liðs við Hauka nú í sumar.

Haukar óska þeim innilega til hamingju með árangurinn