KKÍ gerði upp liðinn vetur síðastliðinn föstudag og þar vorum við Haukamenn með nokkrar viðurkenningar og erum við ákaflega stollt af okkar fólki.
Helena Sverrisdóttir var valinn besti leikmaður Dominos deildar kvenna og var auk þess valinn í 5 manna stjörnuliðið. Helena var spilaði stórkostlega í vetur og er vel að þessari viðurkenningu komin.
Kári Jónsson var valinn efnilegasti leikmaður Dominos deildar karla og var auk þess valinn í 5 mann stjörnuliðið. Kári sýndi og sannaði að hann var orðinn einn besti leikmaður deildarinnar þrátt fyrir ungan aldur.
Við óskum þeim báðum til hamingju með þennan frábæra árangur.