Helga Ýr Kjartansdóttir og Kristín Fjóla Sigþórsdóttir hafa endurnýjað samninga við knattspyrnudeild Hauka.
Þær Helga og Kristín gengu til liðs við Hauka í ársbyrjun 2018 og fagnar stjórn knattspyrnudeildar Hauka nýjum samningnum við þær stöllur.
Helga, sem spilar jafnan sem varnarmaður, á að baki 16 leiki með Haukum í Inkasso deildinni og Kristín, sem spilar jafnan sem miðjumaður, á að baki 30 leiki með Hakum í Inkasso deildinni auk þriggja leikja í Mjólkurbikarnum.