NÁMSKEIÐ Í BOÐI Á VETRAR- og VORTÍMABILI 2021 (jan-mars & apríl-júní)
…………………….
NÁMSKEIÐ Í BOÐI Á HAUSTÖNN 2020
Haustið 2020 verða námskeið í boði fyrir tvo aldursflokka sem hefjast 5. október og verða fram að jólafríi. Námskeiðsgjaldið fyrir þetta tímabil er á sérstöku kynningarverði, aðeins 24.900 kr. og nýta má frístundastyrkinn frá Hafnarfirði fyrir 3 mánuði upp að 4.500 kr., sem gerir hlut iðkandans 11.400 kr. ef styrkurinn er nýttur. Athugið að aðeins eru 20 pláss í boði á hvoru námskeiði.
Skráningar eru hafnar og fara fram á haukar.felog.is
NÁMSKEIÐSLÝSING
Æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50. Æfingarnar eru samsettar úr rafíþróttum (Fortnite, Counterstrike, Call of Duty, o.fl.), hugaríþróttum, líkamlegri þjálfun og fræðslu um heilbrigðan lífstíl. Æfingarnar fara í grunninn þannig fram að í 2/3 af tímanum eru spilaðir tölvuleikir í fullkomnu tölvuveri Hugaríþróttadeildarinnar, og 1/3 af tímanum eru eru gerðar líkamlegar æfingar og ýmsar hugarþrautir eins og skákþrautir, að tefla hraðskák, „IQ-þrautir“ og fleira slíkt. Að auki fá iðkendur heimaverkefni sem felast í því að horfa á stutta fræðandi fyrirlestra um t.d. svefn, næringarfræði, mannslíkamann og þjálfun hugans. Hverju námskeiði lýkur svo með félagslegum atburði þar sem hópurinn hittist og gerir sér glaðan dag.
ÆFINGATAFLA – Fyrsti tíminn er mánudaginn 5. október
Fyrir 4.-7. bekkinga (8-12 ára)
- Mánudagar 15:30-17:00
- Fimmtudagar 15:30-17:00
Fyrir 8.-10. bekkinga (12-16 ára)
- Mánudagar 17:00-18:30
- Fimmtudagar 17:00-18:30