Lætin í Iceland Express deild karla hefjast á morgun fyrir Haukaliðið þegar að Snæfell kemur í heimsókn. Liðin mættust síðast í 8 liða úrslitum deildarinnar á síðustu leiktíð þar sem að Snæfell hafði betur og hélt áfram í undanúrslit.
Leikurinn hefst eins og venja er kl. 19:15 og leikstaðurinn er Ásvellir.
Grillið verður rifið fram og borgurum skellt á grillið líkt og á síðustu leiktíð. Verður kveikt upp kl. 18:00 og geta svangir Haukamenn og konur komið upp á pall og verslað sér gómsætan Haukaborgara.
Á meðan stuðningsmenn gæða sér á borgurum verður sýnt kynningarmyndband á leikmönnum meistaraflokks sem og viðtal við Pétur Ingvarsson þjálfara liðsins.
Fjarðarkaupsleikurinn verður á sínum stað og svo verður Coke Cola skotið kynnt til leiks. Komið því við á Ásvelli á morgun, föstudag, og takið þátt í frábærri skemmtun.
Áfram Haukar