IE-deild kvenna hefst á morgun

Þá er loksins komið að því, fyrsti heimaleikur kvennaliðs Hauka í Iceland Express deildinni fer fram á morgun miðvikudaginn 12. október kl. 19:15 þegar að Njarðvík kemur í heimsókn á Ásvelli.

Stúlkurnar hafa verið ósigrandi á undirbúningtímabilinu og unnið bæði Ljósanæturmótið í Reykjanesbæ og Lengjubikarinn með stæl.

Í hálfleik mun rúlla leikmannakynning og viðtal við þjálfara kvennaliðsins, Bjarna Magnússon, uppi á palli og stuðningsmönnum gefst tækifæri á að skrá sig í Hauka í horni.

Sjáumst á Ásvöllum á morgun og hvetjum Hauka til sigurs í fyrsta heimaleiknum.