Handknattleiksdeild Hauka hefur gert samning við Ivan Ivokovic, 20 ára örvhenta skyttu frá Króatíu. Ivan er fæddur árið 1996, 207 cm. að hæð og 115 kg. Hann hefur spilað með unglingalandsliðum Króatíu og einnig með liðum eins og Zagreb, Karvina, Tatran Presov og nú síðast Maribor í Slóveníu. Samningur við Ivan Ivkovic er frá 1. febrúar 2017 til júní 2019.
Við bjóðum Ivan Ivkovic velkominn til Hauka.