Haukastrákarnir munu spila síðasta leik sinn fyrir jólafrí í kvöld er þeir fara til Reykjanesbæjar og etja kappi við Keflvíkinga kl. 19:15.
Haukarnir geta með sigri tryggt sér þriðja sætið í deildinni og eru allir ákveðnir í því að halda áfram sigurgöngunni en þrír síðustu leikir liðsins hafa unnist.
Strákarnir sýndu sparihliðarnar í síðasta leik sínum, á móti Tindastóli, og unnu öruggan 23 stiga sigur á móti liðinu sem vermir annað sætið. Allt liðið spilaði einstaklega vel og þrátt fyrir að lykilmenn liðsins lentu snemma í villuvandræðum, kom það ekki að sök þar sem allur bekkurinn spilaði einstaklega vel.
Við hvetjum allt Haukafólk að gera sér ferði til Keflavíkur og styðja strákana í baráttunni.