Kirkjuhlaup Hauka fór fram annan í jólum frá Ástjarnarkirkju. Um tíu leitið fóru hlauparar úr Haukunum og nærliggjandi hlaupahópum að safnast saman í Ástjarnarkirkju þar sem Sr. Kjartan Jónsson og Haukamenn tóku á móti fólkinu. Fljótlega varð ljóst að mun meiri fjöldi var nú mættur til leiks en árið áður. Á ljósmyndinni sem tekin var af hópunum í upphafi hlaups má telja tæplega 200 hlaupara. Kirkjan var troðfull og meira en það og sr. Kjartan lék á alls oddi. Hann hélt stutta helgistund og blessaði hlaupara. Presti var færð hópmynd frá fyrra ári og síðan var stillt upp fyrir hópmynd þessa árs. Eins og svo oft áður var það Sigurjón Pétursson sem ljósmyndaði hlaupið.
Veður var mjög gott, hægur vindur og hitastig við frostmark. Hlaupið er mjög skemmtilegt, fólk hleypur á sínum hraða en þó er reynt að þjappa hópnum saman við hverja kirkju.
Leiðin lá fyrst að kapelluni í kirkjugarðinum, síðan að Kaþólsku kirkjunni, Klaustrinu, Fríkirkjunni, Víðistaðakirkju, Garðakirkju og að lokum Hafnarfjarðarkirkju. Auðvelt var að stytta sér leið og t.d. sleppa Garðakirkju og fara þá 10 km. Annars eru þetta 14 km. Hlaupinu lauk síðan við safnaðarheimili Ástjarnarkirkju og þar svignuðu borð undan kræsingum, heitu kaffi og súkkulaði.
Skokkhópur Hauka má vera stoltur af þessu framtaki sem greinilega er komið til að vera.
Linkur á fullt af myndum úr hlaupinu:
—
Með hlaupakveðju
Stjórn Almenningsíþróttadeildar Hauka