Kristófer skoraði gegn Bólivíu með U16

Kristófer Jónsson, leikmaður í 3. flokki Hauka í knattspyrnu, var á skotskónum í dag með U16 ára landsliði Íslands er liðið lagði Bólivíu 3-0 UEFA Development Tournament. Ívan Óli Santos (ÍR) og Hákon Arnar Haraldsson (ÍA) skoruðu hin mörkin.

Kristófer er á eldra ári í 3. flokki en hefur nú þegar fengið að spreyta sig með meistaraflokki félagsins og verður spennandi að fylgjast með kappanum á komandi árum.

Ísland mætir Austurríki á sunnudaginn í síðasta leik liðsins á mótinu og hefst hann kl. 11:00.

Þjálfari liðsins er Davíð Snorri Jónasson.

Byrjunarlið Íslands
Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
Jakob Franz Pálsson
Tómas Bjarki Jónsson
Hrafn Hallgrímsson
Guðmundur Tyrfingsson
Ingi Þór Sigurðsson
Grímur Ingi Jakobsson (f)
Lúkas Logi Heimisson
Kristófer Jónsson
Ívan Óli Santos
Arnór Gauti Úlfarsson

Kristófer Jónsson númer 17.
Mynd: KSÍ