Kristófer Jónsson, leikmaður á yngra ári í þriðja flokki karla í Haukum hefur verið valinn í U15 landsliðshóp Íslands sem leikur tvo leiki gegn Sviss, 8. og 10. maí nk. Leikirnir fara báðir fram á Eimskipsvellinum í Laugardal. Þorlákur Árnason er landsliðsþjálfari U15.
Haukar óska Kristófer innilega til hamingju og óska honum góðs gengis í komandi verkefnum með U15 og Haukum!