Kæru félagar! Laugardaginn 6. mars bjóða Haukagetraunir upp á súpu og brauð að hætti Ása yfirmatreiðslumanns Haukagetrauna. Að sjálfsögðu verða með honum nokkrir góðir félagar sem þjónusta alla gesti með bros á vör. Viðurkenningar verða veittar til þeirra sem skarað hafa frammúr í getraunaleiknum og einnig til einhverja sem að á einhvern hátt hafa sýnt sérstök tilþrif. Auðvitað verður haldið áfram með getraunleikinn og búið verður að stilla upp í nýja riðla. Það eru að sjálfsögðu allir velkomnir í „Hús sigurvegaranna“ að Ásvöllum. Þar ríkir gleði og bjartsýni. Hlökkum til að sjá ykkur, kveðja frá Haukagetraunum.