Stjórn kkd. Hauka ákvavð í dag að segja upp samningi við Landon Quick sem kom til félagsins um áramót. Landon lék alls fjóra leiki með Haukaliðinu og skoraði í þeim leikjum 20, 8 stig, tók 3 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.
Engin ákvörðun hefur verið tekin um að finna annan leikmann í stað Landons og má því búast við al íslensku Haukaliði á föstudaginn þegar Haukar mæta Skagamönnum á Ásvöllum.