Lára Mist semur við knattspyrnudeild Hauka

Lára Mist Baldursdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild Hauka.

Lára er fædd 1998 og spilar sem miðjumaður og á að baki 78 leiki með meistaraflokki en hún kemur til okkar frá Stjörnunni.

Lára þekkir vel til á Ásvöllum þar sem hún var á láni hjá okkur árið 2019 og 2021 og hefur því spilað 24 leiki í Lengjudeildinni með meistaraflokki Hauka.

Stjórn knattspyrnudeildar Hauka býður Láru innilega velkomna í félagið!

Ljósm. Hulda Margrét