Haukar munu ekki sitja auðum höndum en eins og fram hefur komið hélt liðið utan til Danmerkur þar sem það tekur þátt í æfingarmóti á vegum SISU. Liðið kemur heim þriðjudaginn 11. september og strax á fimmtudeginum eftir leikur það sinn fyrsta leik á Reykjanesmótinu. Andstæðingurinn er ekki að verri gerðinni en Íslandsmeistarar Grindavíkur kíkja þá í heimsókn á Ásvelli.
Það er því nóg framundan hjá liðinu fyrir komandi verkefni í deild og bikarkeppnum KKÍ.
Fimmtudagur 13. september
Haukar – Grindavík 19:15
Mánudagur 17. september
Haukar – Breiðablik 19:15
Fimmtudagur 20. september
Haukar – Stjarnan 19:15
Mánudagur 24. september
Haukar – Keflavík 19:15
Miðvikudagur 26. september
Njarðvík – Haukar 19:15