Á morgun, laugardag, geta strákarnir úr 2. flokki í handboltanum tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn 2011. Mótherjar Hauka er lið Akureyrar en í báðum liðunun er töluvert af leikmönnum sem hafa verið að leika með meistaraflokki. Það má búast við hörkuleik og við skorum á Haukafólk að mæta á pallana og hvetja okkar stráka til sigurs.
Leikurinn er í Víkinni og hefst kl. 12.30
Leikurinn í beinni útsendingu á sporttv.is
Áfram Haukar!