Lele Hardy besti leikmaður fyrrihluta Dominosdeildarinnar 2013-2014

Í dag veitti KKÍ viðurkenningar fyrir afreksfólk deildarinnar á fyrri hluta tímabilsins í Dominosdeild karla og kvenna.
Veitt voru verðlaun fyrir Dugnaðarforkinn, besta þjálfarann, besta leikmanninn og svo var valið í úrvalslið.
Lele Hardy var valin í úrvalslið kvenna og sem besti leikmaðurinn.

Haukar.is er gríðarlega stolt af Hardy og óska henni innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Hún er búinn að vera mögnuð í liði Hauka og bara í síðasta leik var hún að setja framlagsmet í Dominosdeild kvenna með 60 stigum. Hún á einnig næstu 4 mestu framlagsstigin á þessu tímabili. 

Karfan.is fjallaði um verðlaunaafhendinguna