Regielly Halldórsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við knattspyrnudeild Hauka sem gildir til næstu tveggja ára.
Regielly, eða Leli eins og hún er jafnan kölluð, gekk til liðs við Hauka árið 2018 og hefur hún leikið 30 leiki með meistaraflokki og skorað níu mörk.
Stjórn knattspyrnudeildar Hauka fagnar nýjum samningi við Leli og bindur miklar vonir við hana á komandi tímabili.