Lokahóf Handknattleiksdeildar Hauka næstkomandi laugardag

HaukarÁ næsta laugardag, 14. maí, verður haldið lokahóf handknattleiksdeildar Hauka. Húsið opnar kl 18:15. 
Það verður að sjálfsögðu Eurovision stemmning í húsinu og hægt verður að fylgjast með keppninni á stórum skjá.
Borðhald hefst kl 20:30 og verða það kokkarnir frá Saffran sem elda ofan í okkur dýrindis rétti.
Leikmenn verða heiðraðir og svo verður dansað fram á rauða nótt. 

Allir Haukarar velkomnir en vinsamlegast tilkynnið þátttöku á innkaup@haukar.is, miðaverð er einungis Kr. 2.000

Sjáumst hress.

Áfram Haukar!