Knattspyrnudeild Hauka hefur samið við Mána Mar Steinbjörnsson og gerir hann tveggja ára samning við félagið.
Máni sem er fæddur árið 2000 er að ganga upp úr 2. flokki í meistaraflokk en hann tók þátt í einum leik með Haukum í Inkasso deildinni síðasta sumar. Máni er gríðarlega sterkur varnarmaður sem getur leyst allar stöður í vörninni.
Knattspyrnudeild Hauka fagnar samningnum við Mána og bindur miklar vonir við hann á komandi árum.