Meistaraflokkur kvenna í Haukum er Lengjubikarmeistari C deildar árið 2016 eftir 2-0 sigur á Keflavík á Ásvöllum í kvöld.
Sigur Hauka var fremur sannfærandi en mörk okkar stúlkna gerðu þær Hildigunnur Ólafsdóttir og Alexandra Jóhannsdóttir.
Nú þurfa stúlkurnar að halda uppteknum hætti í sumar en næsti leikur er gegn Sindra í bikarnum sem fram fer í Hornafirði.
Til hamingju Haukar!