Mikill fjöldi mætti á síðustu æfingu í leikjaskóla barnanna fyrir jól enda mikið um að vera. Jólatónlistin hljómaði um leið og börnin fóru í þrautabrautina, Stekkjastaur mætti í heimsókn og færði börnunum glaðning og boðið var upp á vöfflur og kaffi. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir frá skemmtuninni.