Nýja árið hefst á stórleik í Dominos deild kvenna

Snæfells stúlkur mæta í Schenkerhöllina í kvöld kl. 19:30. audur

Haukar og Snæfell hafa háð harða baráttu í síðustu leikjum og má segja að um háspennu hafi verið að ræða í báðum leikjum þessara liða á þessu tímabili.

ATH að leikurinn verður sýndur beint á sporttv en ekki á haukatv.

Snæfell hefur unnið báða leikina eftir að Haukastúlkur hafa haft pálmann í höndunum í báðum þessum leikjum en hent sigrinum frá sér með slæmum ákvörðunum í sókn.

Snæfell situr á toppi deildarinnar með 13 sigra og 1 tap en Haukar sitja í 2-3 sæti með 11 sigra og 3 töp. Sigur í kvöld getur sett pressu á toppinn og því hvetjum við allt Haukafólk að mæta á leikinn og hvetja stelpurnar til sigurs.