Þeim var vel fagnað stelpunum í meistaraflokki í fótbolta þegar þær ný krýndar Íslandsmeistarar gengu í veislusal hrossakjötsunnenda í gærkvöldi þar sem menn snæddu og ræddu málin.
Samúel formaður kynnti m.a. byggingaráform félagsins . Var gerður góður rómur að máli hans sem vakti athygli veislugesta. Nokkrir veislugesta fóru með gamanmál. Góðri kvöldstund lauk er menn gengu út í kyrra stjörnum prýdda haustnóttina sveipaða marglitum norðurljósum.