Haukar og ÍBV leika oddaleik sinn í undanúrslitarimmu liðanna á laugardag kl. 16:30. Í tilefni af því ætla Haukar að bjóða upp á forsölu aðgöngumiða fyrir Haukafólk á Ásvöllum á morgun, föstudag, 18:30 – 20:00 og á laugardag 12:00 – 13:00. Athugið að aðeins er um forsölu að ræða fyrir Haukafólk þar sem að Haukar í Horni kortin gilda ekki. Fjölmennum í rauðu og áfram Haukar!