Hin árlega Októberfest verður haldin á Ásvöllum næsta föstudag. Húsið opnar kl. 19:30 og er 20 ára aldurstakmark. Jónsi og Keli stjórna stemmningunni og svo tekur DJ Jón Gestur við og stjórnar stuðinu fram á rauða nótt.
Miðasala hefst á Ásvöllum í fyrrmálið, þriðjudag, og það er því um að gera fyrir alla að næla sér tímalega í miða því að það vill enginn missa af þessari veislu.