Olísdeild kvenna hefst aftur á morgun, stelpurnar spila við Fram

Marija Gedroit er lykilmaður í liði Hauka og ein af markahæstu leikmönnum OlísdeildarinnarMeistaraflokkur kvenna hefur leik á morgun eftir hlé síðan í nóvember. Stelpurnar mæta spræku liði Fram í Safamýrinni kl 13:30. Haukar eru í 8. sæti eftir 10 umferðir með 7 stig en Framkonur sitja í 5. sæti með 14 stig. Það er því á brattan að sækja en okkar stelpur hafa verið að bæta sig og geta vel unnið Fram með réttu hugafari og góðri baráttu.

Við hvetjum allt Haukafólk til að mæta á leikinn og styðja stelpurnar til sigurs.

Áfram Haukar!