Liðin eru 25 ár síðan hópur eldri Haukafélaga kom saman og ákvað að treysta böndin með stofnun Öldungaráðs Hauka. Stofndagur var 17. október 1991.
Starfsemin hefur verið óslitin síðan og hittast félagarnir mánaðarlega yfir vetrarmánuðina við spil og aðra skemmtan auk árlegra ferðalaga. Tímamótanna verður minnst í hófi hér á Ásvöllum um helgina.