Mánudaginn 6. september tekur haustæfingatafla Hugaríþróttadeildarinnar gildi. Í boði eru bæði blandaðar rafíþróttaæfingar fyrir 4.-10. bekkinga og skákæfingar sem eru opnar öllum. Aðeins eru 10 pláss í boði í hvorum rafíþróttahópi og fer skráning fram á haukar.felog.is. Allir eru velkomnir á skákæfingarnar. Allar æfingarnar fara fram í húsnæði NÚ við Reykjavíkurveg 50 í Hafnarfirði.
Æfingatafla haust 2021
- Mánudagar 16:45-18:00 – Rafíþróttahópur A
- Þriðjudagar 16:45-18:00 – Rafíþróttahópur B
- Miðvikudagar 16:45-18:00 – Rafíþróttahópur A
- Miðvikudagar 17:00-18:00 – Opin skákæfing
- Fimmtudagar 16:45-18:00 – Rafíþróttahópur B